| 16.08.2010 Thin Jim á Amadeus ![]() Næstkomandi laugardag MENNINGARNÓTT mun hljómsveitin Thin Jim halda tónleika ásamt góðum gestum á rakarstofunni Amadeus Laugavei 62. Ekki láta þig vanta. Margrét Eir 14.11.2007 Frostrósir 2007 Frostrósir verða með tónleika á eftirfarandi stöðum 5 des Stykkishólmi klukkan 20:30 6 des Akureyri-Glerárkirkju 20:30 6 des Akureyri-Aukatónleikar 18:00 7 des Ísafjörður-Kirkjan 20:30 7 des Ísafjörður-Aukatónleikar 18:00 8 des Egilsstaðir-Kirkjan 20:30 8 des Egilsstaðir-Aukatónleikar 18:00 15 des Reykjavík-Laugardagshöllin 20:00 16 des Reykjavík-Aukatónleikar 20:00 Frostrósir 2007 eru Margrét Eir, Hera Björk, Regína Ósk og Heiða Ólafsdóttir Framm koma einnig Kolbeinn Ketilsson, Jóhann Friðgeir og Gunnar Guðbjörnsson Karlakórinn Fóstbræður Skólakór Kársnes Stórlhljómsveit Frostrósa undir stjórn Karls Olgeirssonar Miðasala fer framm á Midi.is Margrét Eir 14.02.2007 Fleiri myndir frá MoR túrnum ![]() Það eru komnar fleiri myndir frá MoR túrnum. Þið farið bara inn á "myndir" Margrét Eir 06.02.2007 Nýjar Myndir ![]() Það er nýjar myndir úr MoR ferðinni inni myndafolderinu Tékkið á því Margrét Eir 02.02.2007 Meira MoR Í USA ![]() Fylgist með MoR á tónleikaför í New York og Boston á heimsíðu MoR www.myspace.com/morandmor Tónleikar, útvarp, frægð og frami Margrét Eir 09.01.2007 MoR í New York/Fyrstu tónleikarnir ![]() MoR er með fyrstu tónleikana sína í kvöld á Mannahatta Lounge. http://www.mannahatta.us/index_flash.html Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 Mannahatta Lounge 316 Bowery Street New York Á horni Bleecker og Bowery Hérna er hægt að kaupa MoR Duran Itunes Margrét Eir 15.12.2006 MoR í New York og Boston ![]() MoR fer í tónleikaferð til Bandaríkjana í janúar og febrúar 2007. Þið getið skoðað nánar á myspace síðunni http://www.myspace.com/morandmor Athugið !! Geisladiskur MoR, MoR Duran er núna hægt að kaupa á CDbaby og Itunes Margrét Eir 15.12.2006 Latibær í 4 sæti á Breska smáskífulistanum ![]() Kom öllum skemmtilega á óvart og gaman að geta sagt frá þessu. Til hamingju allir !! Hérna getið þið lesið fréttina http://www.visir.is/article/2006112110099 Margrét Eir 18.11.2006 MoR Duran á CDbaby ![]() Þú getur núna verslað þér MoR Duran á netinu. ![]() Margrét Eir 26.10.2006 Horfðu til himins ![]() Á næstu dögum kemur út plata sem ber heitið Horfðu til himins. Flytjendur á plötunni eru ég Margrét Eir, Eiríkur Hauksson og Páll Óskar Á plötunni eru þekkt gospel lög og sálmar eins og Swing Low, Go down Moses, Sometimes I feel like a motherless child og flr. Allir textarnir hafa verið þýddir yfir á íslensku og lögin í útsetningu Karls Olgeirs Titillagið á plötunni Horfðu til himins er eftir strákan í Ný dönsk og það er mér sönn ánægja að fá að flytja þetta lag í nýrri útgáfu. Það er Frost cultur company sem gefur út þessa plötu Smelltu hérna á og þá getur þú hlustað á Horfðu til himins Horfðu til himins Margrét Eir 16.10.2006 Póstkort í Popplandi ![]() Ég verð með vikulegan pistil frá New York í Popplandi á Rás 2 í vetur. Þetta svokallaða Póstkort verður spilað á mánudögum milli 154 og 15. Ég reyna láta allt flakka þarna. Ég ætla að fjalla að sjálfsögðu um tónlist, mat, veðrið,fólkið og fleira. Endilega stillið á Rás 2. Klikkaðu á þetta og þá kemstu beint inn á Popplandsíðuna www.ruv.is/poppland Margrét Eir 22.08.2006 Nýtt lag ![]() Allt sem ég óska mér 100 % Sumar 2006 Lag: Karl Olgerisson Texti: Margrét Eir (Smelltu á lagi til að hlusta) Margrét Eir 21.08.2006 All of me ![]() Út er komið Box sett (eins og það er kallað) með öllum diskunum mínum. Í Boxin eru 3 diskar það er að segja MEir sem kom út árið 2000, Andartak sem kom út árið 2003 og Í Næturhúmi 2004. Utan um diskana er svo huggulegur hólkur með glænýrri mynd. Boxið fæst plötubúðum og kannski víðar. Takmarkað upplag Margrét Eir 14.08.2006 Menningarnótt ![]() Næsta laugardag verður Menningarnótt og MoR verður að spila í Listaselinu á Skólavörðustíg 17. Við byrjum að spila kl 19. Allir velkomnir Margrét Eir 04.07.2006 Nýtt lag, nýtt look ![]() Á næstu dögum kemur út platan 100% Sumar og þar eru tvö lög þar sem heyrist í mér. Annað lagið er eftir Karl Olgeirsson og textinn eftir mig. Þetta lag vann ég með Dan Grennes í New York. Hitt lagið er í fluttningi MoR og er gamla lagið Ástarsæla eftir Gunnar Þórðarson og textinn er eftir Þorstein Eggertsson. Njótið vel Margrét Eir 23.06.2006 MoR á Yello 28 júní ![]() Dúettinn MoR verður með tónleika á Yello cafe.bar í Keflavík miðvikudaginn 28 júní. Þar ætlum við að flytja Duran lögin okkar ásamt nýju og fersku efni þar á meðal Ástarsæla sem er að koma út á næstunni. Ástarsæla er að sjálfsögðu eftir Gunnar Þórðarson og textann á Þorsteinn Eggertsson. Tónleikarnir byrja klukkan 21:00 og kostar aðeins 1000 kr inn. Mæli með að mæta Margrét Eir 05.05.2006 My space Margrét Eir í myspace Margrét Eir 02.05.2006 Sumar 2006 ![]() Ég verð heima í sumar. Ég lendi á Íslandi á sjálfan Jóróvisíon daginn, 18 maí. Ég segi bara áfram Ísland Það kemur lag með mér í sumar. Ég er að vinna það með Dan Grenne.Dan bassaleikari og útsetjari,lagahöfundur og fleira. Þetta er heimsíðann hans Dan Grennes Lagið er eftir Karl Olgeirsson og textinn er eftir mig sjálfa. Upptökur fara framm í Mission sound recording í New York. Þeir sem spila með mér fyrir utan Dan sem spilar á bass eru David Sherman á píanó,rhodes og flr, Michael Aaron á gítar og Einar Valur Scheving á trommur. Það verður spennandi að taka upp í nýju umhverfi og með nýju fólki. Sjáumst í sumar Margrét Eir 27.02.2006 Myndir frá Sinfóníutónleikum War of the Worlds ![]() Ég var að setja inn myndir frá Sinfóníutónleikunum. Þið farið inn í "myndir" og veljið þar War of the Worlds Margrét Eir 13.02.2006 MoR með plötu vikunnar á Rás 2 MoR Duran er plata vikunnar á Rás 2 vikuna 13-17 febrúar. Heimsíða Rás 2 er hérna Poppland á Rás 2 Margrét Eir 07.02.2006 War of the Worlds ![]() Margrét Eir 07.02.2006 War of the Worlds Ég syng hlutverk Beth í War of the Worlds sem Sinfónían mun flytja í Háskólabío 23 febrúar. Einnig syngja þeir Jón Jósef Snæbjörnsson og Friðrik Ómar Hjörleiffson. Sögumaður er Jóhann Sigurðarson. Leikstjóri Sigurður Sigurjónsson. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson Verkið er eftir Jeff Wayne og ef þið viljið fræða ykkur meira um verkið þá getið þið farið á War of the worlds Þið getið keypt miða á Sinfóníuhljómsveit Íslands Margrét Eir 26.01.2006 Candy Sample:Sample Sale (Looking for love that fits) ![]() Ég verð gestasöngvari hjá vinkonu minni Candy Sample í showinu hennar Sample Sale (Looking for love that fits) sem verður á The Duplex 11 febrúar 2006 klukkan 21:00. Þarna verða flutt lög úr söngleikjum ásamt splúnkunýju efni úr söngleiknum OIL eftir vin minn Will Harrell (www.will-harrell.com) Ef þið eruð í bænum þá hvet ég ykkur til að koma því Candy er frábær Performer og allt í allt frábær stelpa. The Duplex 61 Christopher St East Village, NY Margrét Eir 04.01.2006 MoR nr 59 Duran lagið Save a prayer í fluttningi MoR er í 59. sæti yfir mest spiluðu lög ársins á Rás 2 Margrét Eir 06.12.2005 Frostrósir 2005 ![]() Tónleikar Frostrósa verða í Laugardagshöllinni laugardaginn 10 desember. Fyrri tónleikarnir verða klukkan 16:00 og þeir seinni klukkan 20:00. Hægt er að nálgast miða á www.2112.is Framm koma Íslensku Dívurnar þær Margrét Eir, Regína Ósk, Jóhanna Vigdís,Védís Hervör, Guðrún Árný,Valgerður Guðnadóttir og Ragnhildur Gísladóttir og gestir. Hljómsveitarstjóri er Karl Olgeirsson Margrét Eir 08.11.2005 Nights in white satin Ég er að syngja í dansverkinu hans Mumma sem ég held að heiti Nights in white satin. Þetta verðu flutt í Tisch 5th floor theater, fimmtudaginn 10 nóv og föstudaginn 11 nóv. Við erum bara þrjú í verkinu það er að segja ég syng Nights in white satin (án undirspils), Mummi dansar og Christy. Það er frítt inn þannig ef þið eigið leið um east village næstu helgi. Tisch er á 2nd ave milli 6 og 7 stræti Margrét Eir 08.11.2005 Kem heim um jólin ![]() Ég kem heim í langt jólafrí frá með 28 nóvember til ....ja miðjan janúar. Það er margt á dagskránni í des. MoR verður að spila á Hótel Borg og hér og þar um bæinn. Endilega fylgisti með. Kveðja Margrét Eir Margrét Eir 27.10.2005 Styrktartónleikar á Albatross Ég ætla að koma framm á styrktartónleikum á Albatross bar á laugardaginn kemur. Tónleikarnir eru til styrktar fórnarlömbum fellibylsins Katrina. Ásamt mér koma framm Candy, Chic, Sassy, Cynthia Alvarez, The Barbarians sem eru kannski ekki mjög þekkt nöfn á Íslandi en ég get lofað því að allir þessir listamenn eru frábærir. Ef þið sjáið ykkur fært að mæta þá tek mun ég og Candy sem að verður kynnir þetta kvöld taka á móti ykkur með breytt bros og kaldann bjór. Albatross Bar 36-19 24th Avenue @ 37th Street in Astoria, NY 11103. Hérna eru einnig upplýsingar um stofnunina sem að peningarnir renna til á ensku The National Youth Advocacy Coalition Hurricane Katrina LGBT Relief Fund was founded in response to the recent disaster in the Gulf States. The coalition consists of national and local organizations working at the grassroots level to effect positive social change for the LGBT community. Contributions to the Relief Fund will be distributed by NYAC to local organizations, in the best position to make strategic and high-impact distribution of emergency funds ensuring that LGBT youth and families receive the critical support they need to regain stability in their lives. (www.nyacyouth.org) Margrét Eir 31.08.2005 MoR menning ![]() Á menningarnótt spilaði MoR í Pjúru Ingólfstræti 8 og Eymundson Austurstæti Margrét Eir 15.08.2005 Útgáfutónleikar ![]() MoR verður með útgáfutónleika 21 ágúst. Gamli Baukur,Húsavík 23 ágúst. Græni Hatturinn, Akureyri 25 ágúst. Hótel Borg, Reykjavík Allir tónleikar hefjast klukkan 21:00 Margrét Eir 15.08.2005 MoR Duran ![]() MoR er að gefa út sinn fyrst geisladisk sem ber heitið " MoR Duran". Á plötunni eru aðeins lög eftir hljómsveitina Duran Duran. Þetta eru meðal annars Hungry like the wolf, Rio, Save a prayer, Notorious og Ordinary World. Ég geri ráð fyrir að platan verði komin í búðir í næstu viku....vonandi Margrét Eir 04.06.2005 Candy ![]() Það er búið að vera mjög gaman að hitta vini mína frá Emerson aftur. Reyndar búin að hitta fullt af þeim. Ég fór sem sagt á fimmtudaginn á tónleika hjá henni Önyu eða Anya Singleton og hún kom mér þvílíkt á óvart. Hún syngur jazz og blús með hljómsveitinni sinni og stelpan var alveg að grúva. Heimasíðan hennar er www.anyasingleton.com . Á tónleikunum hitti ég fleiri gamla skólafélaga, einn þeirra er kvikmyndaleikstjóri...ja eða hann er svona rétt að byrja í því og annar er núna töframaður og starfar eingöngu við það...gaman að því. Í gær fór ég svo á Karaoke kvöld sem var hostað af vini mínum Will Harrell....ja eða reyndar hinni hliðinni hans....Candy. Með honum var hin undurfagar Pepper. Klúbburinn var svolítið langt í burtu, fyrir þá sem vita hvar Astoria er, en ég skemmti mér konunglega og tók lagið og allt saman. Stelpurnar voru í stuði og létu allt flakka, þetta var mjög skemmtilegt og ég hlóg mikið. Will er mjög góður vinur minn og við höfum eytt góðum tíma saman hérna í borginni. Hann er ný búin að skrifa söngleik ásamt Michael sem heitir Oil og er svona í anda Dallas þáttanna og verður settur upp hérna í borginni næsta haust...vonandi fæ ég hlutverk. Heimasíðan hans Will er www.will-harrell.com Margrét Eir 03.06.2005 Tónleikar MoR ![]() Dúettinn MoR verður með tónleikar á Björtum Dögum þann 15 júní í Hafnarborg í Hafnarfirði. Margrét Eir 03.06.2005 Las Vegas ![]() Ég var búin að ákveða að eyða ekki peningunum í fjárhættuspil en auðvita varð ég aðeins að prufa og ég eyddi samtals 4 dollurum í þessa vél og vann EKKERT !!!!! EKKKKKERT !!! Margrét Eir 03.06.2005 Hliðið ![]() Þetta er "Hliðið" sem stendur fyrir framan Graceland Margrét Eir 03.06.2005 Graceland ![]() Það kannski lítur út fyrir að vera stórt en það er það samt ekki Margrét Eir 03.06.2005 New York ![]() What a wonderful town Margrét Eir 03.06.2005 Skemmtileg ferð Jæja þá er ég lennt aftur í New York og Friðrik Ómar er farinn heim. Þetta var nú meira ævintýrið frá upphafi til enda. Það yrði allt of langt að telja upp allt það sem gerðist í þessari ferð en það er líka best að geyma sögurnar svo ég geti sagt ykkur það persónulega þegar ég kem heim en svona til að stykla á stóru þá var að heimsækja Elvis var náttúrlega algjör upplifun. Að sjá hvernig Kóngurinn bjó var mjög skemmtilegt. Þetta var miklu notarlegara en ég bjóst við ja bara næstum eins og venjulegt heimili. Las Vegas var heit og meira heitt og heitt. Allan tímann 40 stiga hiti. Þar fórum við á frábæra tónleika/show með Celine Dion. Ég verð að segja þó að hún sé engan veginn uppáhaldssöngkona mín þá var þetta alveg geðveikt og hún í massaformi. Þetta var á föstudeginum. Á laugardeginum fórum við á Alicia Keys sem kom þvílíkt á óvart. Þessi unga stúlku gjörsamlega rokkaði þakkið af húsinu. Nú eftir að hafa eytt ALLT of miklum pening í Las Vegas komum við til New York og tókum það rólega í nokkra daga. Við versluðum, borðuðum góðan mat, fórum á grínshow, Broadwaysýningu og kíktum inn á tónleika og svo var Friðrik farinn. Það er stutt þangað til ég kem heim....bara vika eftir......já hvað tíminn líður hratt.....alveg ótrúlegt Margrét Eir 30.05.2005 Ég og Bill ![]() Bara rétt að skell smá fréttum á netið. Ég skrifa meira um Graceland og Las Vegas síðar en það var ferlega skemmtileg. Fórum á frábæra tónleika, borðuðum góðan mat og gistum á frábæru hóteli. Í Sun studios hittum við Bill Murray og honum fannst við svo skemmtileg að hann bað um mynd af okkur með sér.....by the way þá er hann á leiðinni til Íslands fljótlega......ja eða hann sagði það, finnst Ísland mjög spennandi. Margrét Eir 25.05.2005 Graceland/Las Vegas ![]() Jæja þá er ég komin úr sveitinni. Það var allt annað en leikur einn að fara í sveitina en það er saga að segja frá því og ekki tími fyrir það núna því eftir aðeins 8 tíma verð ég á leiðinni til Graceland. Með mér í ferðinni verður Friðrik Ómar. Við æltum að vera 2 daga í Memphis og svo förum við til Las Vegas þar sem lukkuteningunum verður kastað. Ég reyni að koma með fréttir en hérna er ein mynd til að sýna ykkur heima að ég og Friðrik erum sko til í slaginn. Margrét Eir 20.05.2005 Vermont Jæja ég ætla að skreppa til Vermont yfir helgina og hitta host fjölskylduna mína. Ég er búin að leigja mér bíl og það tekur um 3 og hálfan tíma að komast þangað. Það verður ennþá meira spennandi að fylgjast með fréttum í næstu viku þar sem ég og Friðrik Ómar ætlum á Elvis slóðir (við förum til Graceland) og þaðan til Las Vegas....ég er orðin þokkalega spennt Góða helgi Margrét Eir 17.05.2005 Fyrsta giggið Jæja það hlaut að koma að því. Ég fékk að syngja í gær á litlum jazz veitingastað sem heitir Jules. Reyndar var þetta algjörlega óvænt. Ég var búin að sjá þennan stað fyrir viku síðan og langaði alltaf að kíkja inn, þannig í gær þá skellti ég mér. Þarna var þriggja manna jazzband, ég settist niður og fékk mér rauðvínsglas. Eins og á flestum stöðum hérna þá er alltaf "The friendly bartender" og við byrjuðum að spjalla og áður en ég vissi af var hann búin að tala við bandið og það var ákveðið að ég mundi syngja. Ég söng fyrst The boy from Ipanema við góðar viðtökur og svo söng ég God bless the child. Já ég verð að segja að ég var að fíla mig, smá stressuð en ég meina fyrsta giggið og það verða vonandi fleiri. Yndislegt veður í dag og ég fór aftur í rússneska baðhúsið þvílíkur unaður. Ég mæli með þessum stað fyrir alla sem fara til New York. Hérna er heimasíðan þeirra www.russianturkishbaths.com Margrét Eir 16.05.2005 Sigurvegarinn ![]() Margrét Eir 16.05.2005 Ruglaðist aðeins ![]() Þetta er maðurinn úr Boston Public hin myndin er af Jessicu sem ég leigi hjá.. Margrét Eir 24.05.2005 Boston Public ![]() Og er þetta ekki maður sem lék í Boston Public Margrét Eir 16.05.2005 Mánudagur ![]() Og þetta er það skemmtilega við að búa í east village, hvað er hægt að gera annað skemmtilegra en að horfa á 5 menn keppa um hver getur borað mest af pastrami samlokum. Hérna er nokkrar myndir ykkur til skemmtunar. Sem betur fer var ég að koma úr ræktinni úr 90 mínútna yoga tíma. Margrét Eir 15.05.2005 bara kaffi takk "How may I help you mam?" I am going to have coffee please "What kind?" A latte "What size?" What do you have "We have tall, grande og venti....what will it be?" oooohhooo I´ll have a grande "single, double,triple?" What? "single, double or triple expresso in the latte?" Ohoh....double please "What kind of milk do you want? We have regular, skim,soy,light, 90 %,30%, fatfree, low fat and organic" What was that in the middle? "yeah really funny.....soy?" Yes I will try that "Do you want any syrup in that mam?" What do have? " We have...a" No no no never mind....I´ll have vanilla "Alright, so that will be a grandevanillasoyadoublelatte?" Ok.....yes...I think.... "Will there be anything else.....?" NO NO Thank you..... JUST THE COFFEE "Allright mam that will be 3,25 and you can pick up your coffee at the end of the counter, have a nice day :o)" Margrét Eir 10.05.2005 Vorið er komið Loksins kom vorið/sumar. Það er sól og hiti í New York eftir frekar leiðinlega daga. Ég sat úti á Union Square sem er svona ja kannski eins og Austurvollur. Með mér voru allskonar fólk í lunch-brake (já já nú slettast enskuorðin hægri og vinstri,ég er að reyna að fitta betur inn) Ég tyllti mér þar á tröppu og leyfði sólinni að skoða mig á meðan ég las í bók. Mikið var þetta nú gott. Gleymdi mér aðeins og vænstum of sein að hitta vin minn Will Harrell. Við vorum saman í Emerso college. Í kvöld ætla ég að skoða Joe´s pub, veit ekki alveg hvað ég er að fara að sjá en það er örugglega eitthvað alveg frábært eins og allt hérna, eins og allt í dag, í sólinni. Í bili Margrét Eir 29.04.2005 New York, NY Það er svo margt að sjá hérna svo margt að prufa. Maður verður fyrir valkvíða í hvert skipti þegar kemur að matartíma. En það er nú það sem er svo sjarmerandi við þetta allt saman. Þá er gott að vita hvað maður vill. Ég fór með vinum mín út að borða á Nobu (www.noburestaurants.com) sem er talinn einn af bestu veitingastöðum í heiminum og það kemur ekki á óvart.. Ég mæli með honum. Nema hvað, tveimur borðum frá okkur sat Billy Joel sá eini sanni og hinu megin í salnum var Kelly Osborn, ekki að það hafi verið mjög spennandi fyrir mig persónulega (hef aldrei séð þáttinn) en vinkona mín fékk mynd af sér með henni. Þetta var allt saman mjög skemmtilegt. Næst verður það lunch með Brad Pitt og Jennifer A....nei afskakið Angelina Jo....nei bíddu hver var það aftur. Dísess ég verð að fylgjast betur með. Þangað til næst !! Margrét Eir |